07.01.1952
Efri deild: 55. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í B-deild Alþingistíðinda. (1677)

37. mál, heimilishjálp í viðlögum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég þakka góðar undirtektir, sem þessi brtt. hefur fengið í d. Það er rétt, að þetta atriði, sem hv. 8. þm. Reykv. gat um, fór fram hjá mér sökum vangæzlu. Hins vegar ætti þetta ekki að þurfa að koma að sök, vegna þess að það er nógur tími fyrir hv. Nd. til þess að taka afstöðu til málsins. Það var þar aðeins eitt mál á dagskrá í dag, og er augljóst, að auðvelt er tímans vegna fyrir Nd. að taka málið fyrir alveg á næstunni. Ég legg svo til, að brtt. og frv. verði samþykkt.