11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

87. mál, jarðræktarlög

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég vildi vekja athygli á því, að það er ekki búið að útbýta því þskj., sem felur í sér breytingar á þessu frv., og erfitt er að taka afstöðu til málsins fyrr en búið er að leggja það þskj. fram.