10.12.1951
Neðri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (1880)

96. mál, menntaskólar

Helgi Jónasson:

Herra forseti. Hér er komið við 3. umr. máls með brtt. frá hæstv. menntmrh., sem er um gerbreyt. á frv., og tel ég því sjálfsagt, að sú n., sem um þetta mál fjallaði, fái að fjalla um brtt. þessa, Og geri ég það að till. minni til hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá og n. fái tækifæri til að fjalla um málið út af þessari brtt.