11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)

96. mál, menntaskólar

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Það er út af þessari ósk um, að menntmn. athugi þessa brtt. Mér sem form. menntmn. barst ekki ósk um þetta fyrr en fundurinn var að hefjast í þessari hv. d. Hins vegar er sjálfsagt að skjóta á nefndarfundi nú þegar og freista þess, hvort ekki mætti takast að ljúka að athuga till., sem fram hefur komið, áður en þessum siðdegisfundi lýkur.