22.01.1952
Neðri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)

47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum

Frsm. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. er hingað komið á ný frá hv. Ed., og hafa þar verið gerðar á því nokkrar smávægilegar breyt. Enda þótt ég sé þessum breyt., a.m.k. sumum, ósamþykkur, þar sem ég tel þær draga úr þeim megintilgangi l., að eftirlit megi verða sem fyllst og bezt, þá mun ég ekki fyrir mitt leyti gera till. um það, að nein breyt. verði nú gerð á frv. við þessa umr., til þess að það þurfi ekki að hrekjast á milli deilda og málinu þar með stofnað í tvísýnu. Leyfi ég mér því fyrir mitt leyti að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það kom frá hv. Ed.