13.12.1951
Efri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1205 í B-deild Alþingistíðinda. (2009)

78. mál, orkuver og orkuveitur

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég vil nú fyrst og fremst þakka hæstv. forseta fyrir að taka málið til umr. svona seint, og skal vera mjög stuttorður. Get ég út af fyrir sig látið nægja að vísa að mestu til nál. á þskj. 375, þar sem gerð er fullnægjandi grein fyrir þessu máli. Ég skal aðeins láta þess getið, að málið hefur verið rætt við raforkumálastjóra, sem lagði fram brtt. til n., og hefur n. tekið hana upp á þskj. 375 eins og hún var borin fram til n. af raforkumálastjóra sjálfum. — Ég tel, að þetta sé fullnægjandi, og vildi óska, að frv. yrði afgr. með þeirri brtt., sem borin er fram af n. á þskj. 375.