22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (2035)
78. mál, orkuver og orkuveitur
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 727, er eins og það kom frá Nd. með þeim breyt., er gerðar voru í þessari hv. d. og síðar í Nd.
Frv. var fyrst borið fram af mér sem 78. mál og bundið við virkjanir í Barðastrandarsýslu. Nú hefur sjö nýjum liðum verið beitt við og ábyrgð ríkissjóðs hækkuð upp í 74 millj. kr. Ég hef ekkert við það að athuga. Ég tel eðlilegt, að hv. þm. reyni að tryggja héruðum þeim, sem þeir eru umboðsmenn fyrir, þau gæði lífsins, sem aðrir landsmenn hafa fengið. Ég er ekki á móti því, þó að það torveldi framkvæmd þeirra virkjana, sem ég bar fram till. um í mínu frv. En ég vildi í tilefni af ræðu hæstv. ráðh. spyrja, hvort ekki verði látin fara fram gagnger rannsókn. Fyrsta skrefið er, að virkjanirnar séu teknar upp í lögin, og það næsta, að rannsókn fari fram. Ég vænti þess, að á næstu árum verði öll þessi orkuver rannsökuð. Það er minnsta krafa, sem hægt er að gera til ríkisstj., að rannsókn og undirbúningi málsins verði hraðað eins og unnt er, þá sést, hvað hægt er að framkvæma og hvað ekki, og helzt þyrfti þessi rannsókn að fara fram í ár. Í þessu sambandi vil ég minna á, að samþ. hefur verið í Sþ. till. til þál. um að láta fara fram rannsókn á öllum vatnsföllum á Vesturlandi til þess að athuga, hver eru hentugust til virkjunar.
Þetta vildi ég segja og legg svo til, að frv. verði samþ. óbreytt.