26.11.1951
Neðri deild: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

20. mál, hegningarlög

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Mig minnir, að síðast þegar þetta mál var rætt, þá hafi allshn. ætlað að athuga ýmsa hluti í sambandi við 2. gr. frv. Ég vildi nú leyfa mér að spyrja hv. n., hvort hún hefur ekki athugað þetta frv., svo að fyrir liggi frá henni brtt. við það.