22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (2146)
162. mál, gjald af kvikmyndasýningum
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Í sambandi við það, sem hæstv. dómsmrh. sagði áðan, vil ég benda á það, að ég veit ekki til þess, að skólabörnum hafi neins staðar á landinu verið seldur aðgangur að sundlaugum.
Viðvíkjandi bíóunum vil ég segja það, að ég hef hvergi séð, að búið sé að afnema sætagjaldið. Þetta gjald mun stafa frá þeim tíma, er bíóin voru aðeins tvö hér í Reykjavík, og mun það þá hafa orðið samkomulagsatriði milli þeirra og bæjarstjórnar fyrir leyfi til þess að halda hér sýningar, en þegar halla fór undan fæti hjá kvikmyndahúsunum, fóru þau að reyna að komast hjá því að greiða gjaldið. Bæjarstjórn Reykjavíkur mun hafa lækkað eða fellt niður útsvör hjá mörgum hér í Reykjavík, en ég hef aldrei séð hjá hverjum. Hitt er mér kunnugt um, að sætagjaldíð hefur verið talið til frádráttar við útsvarsálagningu hjá kvikmyndahúsum. Og ef þessi 10% koma nú einnig til frádráttar, þá er ég hræddur um, að útsvar bíóanna lækki ískyggilega mikið. Annars er ég sammála hæstv. dómsmrh. í því, að óþarfastofnanir eins og kvikmyndahús séu látnar borga eins mikið og framast er unnt til ríkis og sveitarfélaga.