23.01.1952
Efri deild: 69. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)

162. mál, gjald af kvikmyndasýningum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil láta það koma fram í frv. sjálfu, að um leið og leyft er að leggja þessi 10% á, sé sætagjaldið fallið niður. Ég hef talað við hæstv. dómsmrh. og hv. 7. þm. Reykv., borgarstjórann í Reykjavík, og málið mun liggja þannig fyrir, að tvö bíó eru ekki skyld að greiða þetta sætagjald, og mun því erfitt að rukka hin. Ég legg því til, að aftan við 2. gr. bætist svo sem segir á þskj. 751.