21.01.1952
Neðri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

109. mál, skipun prestakalla

Forseti (SB):

Afbrigði þarf að fá fyrir brtt., sem nú hefur verið útbýtt á þskj. 709, 710 og 711, enn fremur fyrir brtt. á þskj. 685 frá hv. 1. þm. Árn., einnig afbrigði fyrir skriflegri brtt. frá hv. þm. V-Ísf., sem hann þegar hefur lýst, og loks brtt. frá hv. 1. þm. Árn. við brtt. á þskj. 685.