15.01.1952
Neðri deild: 59. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (2470)

107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.

Magnús Jónsson:

Ég hefði talið æskilegt, að frv. þetta hefði verið afgr. með breyt., sem ég hef ásamt tveim öðrum þm. gert till. um. En þar sem nú liggur fyrir yfirlýsing frá hæstv. fjmrh., að hann vilji efnislega ekki fallast á þær takmarkanir, sem gert er ráð fyrir í till. okkar, og mjög hæpið er, að þær nái samþykki, þá segi ég, já.