18.10.1951
Neðri deild: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2621)

22. mál, Akademía Íslands

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Frv. shlj. þessu var lagt fyrir síðasta þing og náði ekki fram að ganga. Hef ég því lagt það aftur fyrir þingið. Þegar málið var fyrir þingi í fyrra, hélt ég ýtarlega framsöguræðu um málið. Tel ég því ekki ástæðu til að ræða málið frekar nú. — Ég óska svo, að máli þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.