07.01.1952
Neðri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (2671)

65. mál, sjúkrahús

Pétur Ottesen:

Það mun hafa verið 19. okt. s. l., sem frv. um sjúkrahús o. fl. sem ég flutti. var vísað til heilbr.- og félmn. Enn hefur ekki bólað á afgreiðslu þessa máls frá nefndinni og vildi ég, um leið og ég óska upplýsinga um það, hvað þeirri töf veldur, mjög mælast til þess, að hún léti ekki síga úr hömlu með að afgr. það.