17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (2674)

65. mál, sjúkrahús

Pétur Ottesen:

Ég gerði fyrirspurn um það fyrir nokkru, hvað liði frv., er ég flutti og vísað hafði verið til heilbr.- og félmn., og fékk þær upplýsingar, að staðið hefði á umsögn landlæknis um málið. Nú vil ég ítreka þessa fyrirspurn og fá að vita, hvað þessu liður, svo að málið geti komið fyrir þingið og unnt verði að sjá, hverjar undirtektir það fær þar.