17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (2675)

65. mál, sjúkrahús

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Hv. þm. Borgf. er það kunnugt, hvað hefur valdið drætti þeim, er hefur orðið á afgreiðslu frv. hans í n. — Í gær fékk n. í hendur umsögn þá, er beðið var eftir, og tók málið til umr. í morgun, en tími vannst ekki til að ljúka afgreiðslu þess, en það mun verða gert í dag eða á morgun.