25.10.1951
Neðri deild: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (2684)

73. mál, brúargerðir

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að skírskota til grg., sem fylgir frv. þessu, og sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða um málið nú, en geri það að till. minni, að því verði vísað til hv. samgmn. að þessari umr. lokinni.