16.11.1951
Neðri deild: 29. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í C-deild Alþingistíðinda. (2843)

100. mál, sýsluvegasjóðir

Flm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Þessu frv. fylgir allýtarleg grg., og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka hana hér í hv. d., hún liggur fyrir framan hv. þm. En ég vil geta þess, að þegar þetta frv. var flutt, var okkur flm. ekki kunnugt, að það væri á ferð breyt. á fasteignamatinu, sem náttúrlega mundi hafa mjög mikil áhrif í þessu sambandi. En það er nú svo með það mál, að það er ekki orðið að l., og slíkt hlýtur að hafa aðdraganda. Sé ég þess vegna enga ástæðu fyrir okkur að draga þetta frv. til baka, en óska, að því verði vísað til hv. samgmn. að umr. lokinni.