23.10.1951
Efri deild: 19. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (2926)

62. mál, ítök

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég vil beina því til hæstv. forseta, hvort hann ætli að bera upp brtt. á þskj. 107, um umorðun 5. gr., óleiðrétta, sem mun vera á móti vilja landbn. Hér mun vera um prentvillu að ræða, eins og komið hefur fram í umr. Ég mun ekki taka þátt í afgreiðslu málsins á svo óþinglegan hátt.