11.01.1952
Efri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (3045)

152. mál, húsrými fyrir geðsjúkt fólk

Forseti (BSt):

Út af þeim miklu umr., sem hér hafa orðið um þetta mál, þá vil ég benda n. á, að eigi málið að fá afgreiðslu, þá verður hún að fara fram nú eða á mánudag. Ég skal lofa því að halda annan fund og taka þá málið fyrir, en það er vitanlega bundið því skilyrði, að samkomulag náist. Það yrði þá tekið til 3. umr. á mánudag; það ætti ekki að verða málinu til trafala, þó að það bíði til mánudags.