23.01.1952
Sameinað þing: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í D-deild Alþingistíðinda. (3304)

165. mál, hótelhúsnæði

Emil Jónsson:

Það eru aðeins örfá orð til að svara fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. Ég held hann hafi nú ekki spurt vegna þess, að hann vissi ekki, að viðkomandi hótel hefur enn ekki verið reist. Er þetta mál var athugað ofan í kjölinn, þá kom í ljós, að hótelið var dýrara en svo, að hægt væri að leggja í byggingu þess með því fé, sem til staðar var. Ég harma það mjög, að svo skyldi fara, og ef hv. 1. þm. N-M. gæti útvegað fé til byggingarinnar, þá yrði ég honum mjög þakklátur fyrir það.