12.11.1951
Neðri deild: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í D-deild Alþingistíðinda. (3339)

13. mál, lánveitingamál bankanna

Einar Olgeirsson:

Að vísu hefur þetta mál upplýsist að nokkru leyti við umræðurnar hér í deildinni, þar sem hæstv. viðskmrh. hefur lýst sig og ríkisstj. sek um það atriði, sem ég vildi láta rannsaka. En ég vildi láta rannsaka nánar afskipti þessa starfsmanns ríkisstj. í sambandi við lánveitingar til íbúðabygginga og tel heppilegt, að skipuð verði nefnd í því skyni. Ég segi því já.