02.11.1951
Sameinað þing: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í D-deild Alþingistíðinda. (3356)
49. mál, bifreiðavarahlutir
Flm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykv. talaði um lögbrot, en það er ekkert nýtt úr hans munni. Hvorugur okkar er lögfræðingur, en ég vil halda því fram, að það, sem gert hefur verið, sé í samræmi við gildandi lög. Hv. 2. þm. Reykv. er ekki svo kjarklaus, að hann hefði ekki hafið máls á því, ef svo hefði verið. Þetta mál er bezt að ræða rólega, en ekki með neinum ofstopa.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að hæstv. viðskmrh. flýði alltaf úr d., þegar verið væri að ræða um viðskiptamál. Ég get fullvissað hv. 2. þm. Reykv. um það, að hæstv. viðskmrh. er ekki svo kjarklaus, að hann þori ekki að hlusta á þvætting hans um viðskiptamál.
Hæstv. viðskmrh. er nú sem stendur að halda ræðu á landsfundi sjálfstæðismanna og getur því ekki verið hér. Það er því alveg rangt, að hann hafi flúið úr d. (EmJ: Væri ekki nær fyrir hann að vera hér?) Ég man ekki betur en það hafi komið fyrir þennan hv. þm., meðan hann var ráðherra, að hann væri að halda ræðu annars staðar, meðan hann átti að vera hér. Ég býst við, að það hafi komið fyrir hjá flestum eða öllum hv. þm. Það er því barnaskapur að vera að segja, að hæstv. viðskmrh. þori ekki að vera hér. Við, sem þekkjum hann, vitum, að slíkt er fjarri lagi.
Mér kom það einkennilega fyrir sjónir, þegar hv. 1. þm. N-M. sagði hér áðan, að meiri hl. bifreiða í landinu væri lúxusbílar. Hv. þm. verður að athuga, að allir litlir bílar eru ekki lúxusbílar, heldur er fjöldinn af þeim leigubílar. Og þó að einstakir menn eigi bíl, þarf það alls ekki að vera lúxusvagn. Ég á sjálfur lítinn bíl og tel það engan lúxus fyrir mig. Það mun sanni nær, að um 90% af innfluttum varahlutum sé notað í vörubifreiðar og sérleyfisbifreiðar, m. ö. o. þær, sem eru í þungum og erfiðum flutningum, en um 10% fer til smærri bíla, og eru það ekki allt lúxusvagnar, eins og ég sagði áðan.
Þá vil ég koma að því, sem hv. 2. þm. Reykv. og hv. 1. þm. N-M. sögðu hér áðan, að ríkisstj. hefði gefið frílistann út án þess að ráðfæra sig við þingið og að ég hafi verið að ásaka þm. Ég held, að ég hafi farið varlega í það að ásaka þm., en hitt vil ég segja, að þetta hefði ekki verið gert, ef legið hefðu fyrir mótmæli frá meiri hl. þm. Þótt 2. þm. Reykv. undri sig á þessu nú, held ég, að hann hafi vitað í vor, hvað var að gerast, og hefði þá verið auðvelt fyrir hann að hreyfa mótmælum.
Það er ástæðulaust að vera að ræða meira um þessa þáltill. nú. Hún fer til n. og fær þar afgreiðslu. — Ég vona svo, að hv. 2. þm. Reykv. hjálpi til að fá innflutning varahluta í bifreiðar frjálsan, enda þótt eitthvað kunni að standa eftir, sem hann og hans flokksmenn eru óánægðir með.