11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í B-deild Alþingistíðinda. (347)

17. mál, varnarsamningur

Hannibal Valdimarsson:

Ég var á sínum tíma andvígur því, að Ísland gengi í Atlantshafsbandalagíð, en þegar svo er orðið, tel ég einsætt, að Íslendingar verða að standa við skuldbindingar sínar, og tel ég því, að þeir eigi ekki annars kost en ganga til þessara samninga, og segi því já.

Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (A. 405).