08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (3563)
182. mál, launalög, réttindi og skyldur opinberra starfsmanna
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það er kunnugt, að opinberir starfsmenn fá nú greiddan nokkurn hluta launa sinna samkvæmt þál., þ. e. a. s. opinberir starfsmenn fá ekki greidd öll laun sín samkvæmt skýlausu ákvæði launalaganna. Þetta hefur í för með sér öryggisleysi fyrir þessa stóru stétt landsmanna. Þess vegna hefur staðið lengi til undanfarið að setja ný launal., þó að það hafi ekki verið gert enn. Hér er spurt um, hvers megi vænta af hálfu hæstv. ríkisstj. í þessu efni á þessu þingi.
Ég vil, fyrst þetta mál ber á góma, beina til hæstv. fjmrh. annarri fyrirspurn, náskyldri þessari: Á döfinni munu vera ýmis vafaatriði varðandi launagreiðslur, hversu háar launagreiðslur til ýmissa hópa starfsmanna skuli vera, t. d. til stundakennara í gagnfræðaskólum og unglingaskólum. Mér hefur verið tjáð, að uppi sé nokkur deila milli Bandalags opinberra starfsmanna og hinnar opinberu starfslaunanefndar. En þessir menn, sem ég nefndi, hafa ekki fengið eins mikla uppbót á sín tímalaun og fastir kennarar hafa fengið. Ég vildi einnig fá að vita frá hæstv. ráðherra, hvort niðurstaða sé væntanleg í þessu máli.