08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (3565)

182. mál, launalög, réttindi og skyldur opinberra starfsmanna

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Mér eru það að vísu vonbrigði, að stjórnin skuli ekki enn hafa tekið ákvörðun um að leggja fram frv. um ný launal., og læt í ljós eindregna ósk mína um, að hæstv. ríkisstj. beri fram á þessu þingi frv. til nýrra launal„ sem séu í samræmi við óskir opinberra starfsmanna um þetta efni.