14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í D-deild Alþingistíðinda. (3582)

183. mál, dilkakjöt

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Það var aðeins í tilefni af því, að hv. þm. hafði eftir mér, að gróði væri á þessari framleiðslu. Ég sagði að þetta væri einn af þeim fáu atvinnuvegum, sem bæru sig, en það er ekki sama og að segja, að það sé gróði á þessum atvinnuvegi. Við vitum, hvernig það er með bátaflotann og iðnaðinn. Það var ástæðulaust að túlka þessi ummæli þannig.