12.10.1951
Neðri deild: 10. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

40. mál, lántaka vegna áburðarverksmiðjunnar

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur skilað áliti um þetta mál á þingskjali 68. Eins og þar kemur fram, mælir n. með því, að frv. verði samþ. En hins vegar vil ég geta í sambandi við þetta mál, að því var hreyft í fjhn., að ákvæði laganna um áburðarverksmiðju væru nokkuð óljós um það, hvernig væri fyrir komið í raun og veru umráðum þess fyrirtækis. Það var umtal um það í n. að taka til nánari athugunar lögin um áburðarverksmiðju. Ég vil geta um þetta. Ég geri ráð fyrir, að n. athugi það nánar. En það snertir út af fyrir sig ekki þetta lántökufrv., sem hér liggur fyrir.