17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1405 í B-deild Alþingistíðinda. (3660)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Forseti (SB):

Ég vil upplýsa það fyrir hönd samgmn., að fyrra málið, er hv. þm. V-Húnv. spurði um, hefur verið tekið fyrir, eftir að beðið hafði verið um tíma eftir umsögn vegamálastjóra, og er það afgreitt, og mun nál. verða útbýtt í d. í dag eða á morgun. — Sama gegnir um annað frv., sem hv. 2. þm. Skagf. (JS), hv. þm. Borgf. (PO) og hv. þm. A-Húnv. (JPálm) flytja. — Frv. um ferðaskrifstofu ríkisins er enn í athugun hjá n., en vonandi verður hægt að afgreiða það fljótlega.