17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1405 í B-deild Alþingistíðinda. (3662)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því, að 18. okt. var frv. til l. um breyt. á raforkulögum vísað til fjhn., og hefur n. ekki skilað áliti enn. Þetta frv. er flutt af þm. úr öllum flokkum, og sætir satt að segja furðu, hversu hv. fjhn. hefur tekizt að sitja þungt og lengi á þessu frv. Ég vil nú beina þeirri spurningu til hv. form. n., hvers vegna n. hefur ekki tekið afstöðu til málsins og skilað áliti.