20.12.1951
Efri deild: 53. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (3689)

Þinghlé

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil leyfa mér fyrir hönd okkar þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir okkur til handa. Vil ég óska honum góðrar heimferðar og heimkomu. Megi hann njóta gleðilegra og ánægjulegra jóla og góðs og farsæls árs. Bið ég hv. þdm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]