20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (3694)

Þinghlé

forseti (JPálm):

Þá eru ekki fleiri mál á dagskrá og verkefni þessa fundar lokið. Nú er ákveðið að fresta þingfundum til 3. jan. 1952, og um leið og ég segi þessum fundi slitið, vil ég þakka hv. alþm. samvinnuna á þessu þingi og óska þeim öllum, sem og öllum starfsmönnum Alþ., gleðilegrar jólahátíðar. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Svo vona ég, að við hittumst allir heilir að loknu þessu þinghléi.