20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (3695)

Þinghlé

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég veit, að ég mæli fyrir hönd allra hv. þm., þegar ég þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð og óska honum gleðilegra jóla og góðrar heimferðar og vona, að við sjáum hann heilan á húfi, er þingfundir hefjast að nýju. — Ég vil leyfa mér að biðja hv. þdm. að taka undir þessar árnaðaróskir með því að risa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]