23.01.1952
Efri deild: 70. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (3698)

Starfslok deilda

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil leyfa mér að bera fram þakkir til forseta, og veit ég, að ég mæli þar fyrir munn allra þdm. Þakka ég honum fyrir ágætt samstarf á þessu þingi, góða og röggsama fundarstjórn og óhlutdrægni í fundarstjórnarstarfi. Vil ég leyfa mér að óska honum góðrar heimferðar, heillar heimkomu og góðs og farsæls árs. Bið ég hv. þdm. að taka undir þessar óskir mínar. — [Deildarmenn risu úr sætum.]