13.12.1951
Efri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (384)

6. mál, togarakaup ríkisins

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að tefja það, að málið gangi til 3. umr., enda ætla ég ekki að greiða atkv. á móti málinu, heldur sitja hjá við atkvgr. Hitt er annað mál, að ef það er rétt, sem hæstv. ráðh. segir, þá hefur hann verið hlunnfarinn af þessum mönnum, því að n. spurði þá að þessu, og þeir viðurkenndu ekki annað en að hafa skilað skoðunargerð.