11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (460)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Skúli Guðmundsson:

Í nál. um þetta mál frá meiri hl. fjhn. á þskj. 343 hafa 3 af nm. mælt með frv. þessu með breyt., sem meiri hl. flytur till. um á sérstöku þskj. og nú hefur verið samþ. Mér þykir því einkennilegt, að einstakir menn í meiri hl. skuli nú greiða atkv. með öðrum brtt., sem gerbreyta efni frv. Ég segi nei við þessari brtt.