19.12.1951
Neðri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (SB):

Það má doka við augnablik, meðan hv. þm. gengur frá till. — Mér hefur borizt svo hljóðandi skrifleg brtt. frá hv. 2. landsk. og hv. þm. Hafnf.:

„Á eftir 3. gr. frv. komi ný grein, svo hljóðandi: Fari söluskatturinn fram úr þeirri upphæð, sem áætlað er í fjárlögum, rennur það, sem umfram er, til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til skipta í hlutfalli við íbúatölu sveitarfélaganna.“

Um þessa till. þarf tvöföld afbrigði, þar eð hún er of seint fram komin og auk þess skrifleg.