05.12.1951
Sameinað þing: 22. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (624)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Ég tel brýna nauðsyn bera til þess, að ríkissjóður standi skil á þessum skuldum, sem hér um ræðir. En nú mun væntanlegt frv. frá hæstv. ríkisstj. um ráðstöfun á tekjuafganginum, og vil ég því sjá, hverju fram vindur, og segi nei við þessari till.