19.12.1951
Sameinað þing: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég kvaddi mér hljóðs til að þakka hv. fjvn. fyrir góða samvinnu og það mikla starf, sem hún hefur unnið.

Eins og allir hv. þm. vita, má ekki tæpara standa, og veit raunar enginn, hver útkoman verður, því að það fer eftir árferðinu næsta ár. Ég vil því mjög taka undir það, sem hv. frsm. n. sagði í niðurlagi ræðu sinnar.