20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (678)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég er samþykkur þeirri hugsun, sem felst í till., en þar sem ég tel óeðlilegt að bera þetta mál fram sem brtt. við fjárl., þar sem hér er aðeins um ákvæði að ræða, sem gildir í eitt ár, enda vafasamt, að þetta haldi gildi gagnvart lögum um áfengisverzlun ríkisins og tóbakseinkasöluna, tel ég mér ekki fært að greiða atkv. með till., enda þótt ég sé henni samþykkur í eðli sínu. Ég greiði því ekki atkv.