11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (748)

18. mál, bifreiðalög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Þetta frv. var undirbúið í dómsmrn. og ætlað til þess að koma á samræmi milli verðlags og trygginga á bifreiðum. Ég hef nokkuð athugað þetta mál og komizt að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að samþ. það. Hitt er alltaf nokkurt álitamál, hvaða upphæð menn vilja setja í þessu sambandi. Í Nd. var því hreyft, að upphæðin væri of há og rétt væri að lækka hana, en frá því var þó horfið aftur. — Ég mælist til þess, að frv. verði afgr. óbreytt og sem fyrst.