14.12.1951
Neðri deild: 44. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (766)

132. mál, lánasjóður stúdenta

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv. mun vera samið af stúdentaráðinu og er flutt af hæstv. menntmrh. Fjhn. hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en hefur ekki tekið afstöðu til þeirrar brtt., sem fyrir liggur, þar sem ætla má, að skammt sé til þingslíta og n. óttast, að breyt. geti orðið til þess að tefja málið.