14.01.1952
Neðri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (834)

156. mál, skattfrádráttur vegna skuldaskila bátaútvegsins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er stjfrv., er komið frá hv. Ed. og er um það að heimila skattanefndum sérstaka aðferð við frádrátt á skattaframtölum vegna tapaðra skulda, sem afskrifaðar voru í sambandi við skuldaskil bátaútvegsins. Í grg. eru ástæðurnar fyrir þessari till. teknar fram. — Ég vil leyfa mér að óska eftir, að málinu verði vísað til hv. fjhn.