04.02.1953
Efri deild: 68. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)
197. mál, tollskrá o.fl.
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Mér er fullkunnugt um, að hæstv. forseti hefur jafnan skýrt þetta mál þannig. Hins vegar tel ég, að ég mundi hafa fullan rétt til að mótmæla þessu á þessu stigi og fá frv. sent til Nd. og gera tilraunir þar til þess að fá leiðréttingu á þeim málum, sem hér hafa verið felld. En vegna þess að ég vil á engan hátt gera ummæli hæstv. forseta ómerk, þá sætti ég mig við þennan úrskurð, að hann afgreiði þetta hér sem lög frá Alþ.