08.12.1952
Efri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)

18. mál, bæjanöfn o. fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég veit nú ekki, hvernig hæstv. forseti hugsar sér að bera upp þessar till. En ég hefði getað fellt mig við að taka aðaltill. mína á þskj. 358 aftur, ef brtt. 361 yrði samþ. En ég hefði hins vegar gjarnan viljað bera fram varatill. sem brtt. við till. á þskj. 361, þannig að í stað „í sama sýslufélagi“ komi: í sama hreppsfélagi — og mun leggja það til hæstv. forseta, þ.e. taka aftur aðaltill., en bera varatill. fram sem brtt. við brtt. frá menntmn. á þskj. 361.