03.02.1953
Neðri deild: 63. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (1224)
164. mál, ríkisborgararéttur
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Herra forseti. Eins og menn rekur nú vafalaust minni til, þá tóku flm. brtt., sem lágu fyrir við 2. umr. málsins, þeir hv. þm. N-Ísf. og hv. þm. A-Húnv., sínar brtt. aftur við þá umr., og liggja þær nú fyrir við þessa 3. umr. málsins.
Hv. þm. Borgf. hefur nú einnig borið fram brtt. um, að bætt verði einum manni á frv. og honum veittur íslenzkur ríkisborgararéttur, svo sem hann hefur nú gert hér grein fyrir.
Allir þessir menn, sem þessar brtt. fjalla um, hafa dvalið hér nokkru skemur en 10 ár, og þeir uppfylla þess vegna ekki þá aðalreglu, sem allshn. þessarar hv. d. hefur haft fyrir till. sínum.
Hitt er aftur á móti rétt, að þó nokkrum sinnum hefur útlendum mönnum verið veittur íslenzkur ríkisborgararéttur, án þess að þeir hafi dvalið hér þennan tilskilda tíma, í 10 ár, og um nokkurt skeið voru menn, sérstaklega frá Norðurlöndum, sem fengu þessi þegnréttindi, þó að heimilisdvöl þeirra hér á landi væri nokkru skemmri, og eins og hv. þdm. vita, þá áttu danskir þegnar rétt á því, og var það eitt af samningsatriðum milli þjóðanna um það efni.
Þessar brtt. eru þess vegna að því leyti ekkert frábrugðnar ýmsum þeim till., sem samþ. hafa verið til handa þeim, sem hafa sótt um þegnrétt. Skjöl þessara manna allra eru í bezta lagi, auk þess vitnisburðar, sem felst í fskj. með umsóknunum. Þá liggur einnig hér fyrir umsögn flm., sem hafa kunnugleika á þessu fólki, sem sækir nú um íslenzkan ríkisborgararétt. Þetta eru allt saman menn ættaðir frá Norðurlöndum, tveir frá Noregi og einn frá Svíþjóð, sá sem hv. þm. Borgf. var einmitt að gera grein fyrir.
N. getur nú ekki breytt sinni afstöðu til þessara till., þannig að hún gat ekki gert þær að sínum till., því að hún hefur haft þá reglu að reyna að hafa fulla aðgæzlu á því, að á þeim, sem fengju íslenzkan ríkisborgararétt samkv. hennar till., væri mikill kunnugleiki fenginn, og hefur að mestu haldið sig við búsetusklyrðin, 10 ár.
Hv. þm. Borgf. vék nú að því, að í raun og veru kæmi þetta ekki í bága við gildandi löggjöf um þetta efni nú, því að hún væri að þessu leyti til breytt frá því, sem áður var, og þetta er rétt. Það er ekki í þeim nýju lögum, sem sett voru einmitt á þessu þingi, gerð að skilyrði 10 ára búseta. En þó að það ákvæði stæði í hinum eldri lögum, hafði það ekki frekara gildi en svo, að þingið gat jafnan með nýjum lögum veitt ríkisborgararétt, þó að búseta þess útlendings, er óskaði eftir íslenzkum ríkisborgararétti, væri ekki 10 ár, svo að það hafði í sjálfu sér ekki svo ýkjamikið að segja. N. vill þess vegna nú af sinni hálfu vísa þessu til hv. d.
Eins og ég tók fram við 2. umr. málsins, þá hefur hv. Ed. tekið inn í frv. menn, sem eiga að fá íslenzkan ríkisborgararétt, en hafa ekki frekari réttindi, en þessir umsækjendur, nema jafnvel siður væri. Þess vegna mælir það ekki á móti því, að þessar till. verði samþ. N. mun því láta þetta af sinni hálfu laust, og hv. d. verður að taka ákvörðun um það, hvort þessu fólki skuli veittur íslenzkur ríkisborgararéttur eða ekki. Ég vil aðeins taka það fram í sambandi við þessar brtt.
Vera má, að til séu menn, sem hafa sótt um ríkisborgararétt og eiga nú eitthvað svipaðan rétt og þetta fólk, en hafa þó ekki þá aðstöðu, að neinn hafi tekið slíkar till. upp svo að, að því leyti sé ekki öllu réttlæti fullnægt í þessu efni. En það ber á það að líta, að þeir hv. alþm., sem taka að sér flutning á þessu máli fyrir þetta fólk, hafa náinn kunnugleika á högum þess, og það er mikils vert atriði. Það kemur þá til viðbótar við þau vottorð og þær umsagnir, sem eru með umsóknunum, þannig að það á samkv. þessu að vera mikil trygging fyrir því, að hér sé eingöngu um gott fólk að ræða. Allt eru þetta Norðurlandabúar, og það hefur, eins og ég sagði áðan, einmitt tíðkazt, að þeir hafa fengið íslenzkan ríkisborgararétt, þó að búseta þeirra hafi stundum verið öllu skemmri en annars var aðalreglan, eða 10 ár.
Ég sé svo ekki af hálfu n. ástæðu til þess að fjölyrða frekar um málið. Hv. d. verður að skera úr því.