04.12.1952
Neðri deild: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (1446)

140. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Forseti (SB):

Mér skilst, að nokkur vilji sé til þess hjá hv. sjútvn. að athuga þetta mál lítillega enn þá. Það eru að vísu liðnar rúmar 3 víkur siðan 2. umr. fór fram um málið í hv. þd., þannig að nægur tími hefur gefizt til athugunar og til þess að bera fram brtt. við það. En ég mun samt verða við þeirri ósk að fresta umr. að þessu sinni og taka málið út af dagskrá, en það verður tekið á dagskrá næsta fundar, sem verður væntanlega á morgun.