16.10.1952
Efri deild: 9. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

19. mál, tekjuöflun til íþróttasjóðs

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef í smíðum brtt. við þetta frv., en hef ekki komið þeim í prentun enn þá, þannig að hægt hafi verið að leggja þær fram, og vildi leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki að sinni málið út af dagskrá og taki það ekki fyrir, fyrr en á fundi á morgun. Ég mun þá hafa komið till. í prentun.