28.10.1952
Efri deild: 17. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (156)
95. mál, tilkynningar aðsetursskipta
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það eru nú óveruleg atriði, sem ég ætlaði hér að hreyfa, en mér sýnist þó fara betur á, að leiðrétt séu.
Annað er það, að í 9. gr. frv. er sagt, að tilkynningarskylda sú, sem mælt er fyrir um í lögum þessum, hvíli á hverjum einstaklingi, sem fyllt hefur 18 ára aldur, — það stendur 18 ára. Ég tel, að það sé réttara að setja hér 16 ár, vegna þess að 16 ára aldur er sjálfræðisaldur, og mér virðist beinlínis felast í því, að sjálfráðum manni eigi að vera treystandi til þess að tilkynna um sinn verustað, enda má segja, að hann hafi engan slíkan forráðamann, að á honum geti hvílt skylda til þess að segja, hvar maðurinn er staddur. Sjálfráður maður, en ekki fyllilega lögráður, hefur að vísu mann, sem á að veita honum forræði, en einungis um fjármál. Mér virðist því einsætt, að það sé rétt að breyta þessu í 16 ára aldur, og vil leyfa mér að bera fram brtt. skriflega, sem hljóði svo:
„Við 9. gr. Í stað „18 ára“ tvisvar í 1. mgr. komi: 16 ára.“
Svo er í 14. gr. tekið fram, að lögreglustjórar utan Reykjavíkur skuli hver í sínu umdæmi hafa eftirlit með framkvæmd á fyrirmælum laga þessara o.s.frv. Í framkvæmdinni kann þetta nú að verða svo, að þetta lendi einungis á lögregla- stjórum utan Reykjavíkur. Þó er í kenningunni hugsanlegt, að það þurfi einnig að leita aðstoðar lögreglustjóra í Reykjavík, að það þurfi að láta lögregluþjóna hjálpa til við, að þessari tilkynningarskyldu sé fullnægt, og víst er um það, að almenn skylda hvílir á lögreglustjóra í Reykjavík, ekki síður en öðrum lögreglustjórum, til þess að halda uppi lögum og rétti í landinu. Og það væri nokkuð einstakt fyrirmæli, ef hafa ætti sérstök lög, en lögreglustjórinn í Reykjavík ætti ekki að fylgjast með því, að þau væru haldin. Ég legg því til, að þessi orð — „utan Reykjavíkur“ — séu felld niður úr 14. gr. Ég vil leyfa mér að bera fram skriflegar brtt. og vænti þess, að þetta geti ekki valdið ágreiningi.