02.02.1953
Efri deild: 62. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
121. mál, sjúkrahús o. fl.
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hef nú, eins og ég sagði um daginn, engan sérstakan áhuga fyrir því, að ríkissjóður sé að greiða þær 800 þús., sem hann væri skyldur til að greiða samkv. gildandi lögum, ef viðkomandi aðilar vilja ekki taka við því, heldur sækja það fast að afsala sér þeim réttindum. En ég vil leyfa mér að benda á, að málið hefur verið borið undir þá fundarmenn, sem hér um ræðir, á skökkum forsendum. Það liggur engin trygging fyrir því, að fjórðungssjúkrahús fái nokkurn meiri rekstrarstyrk en önnur sjúkrahús. Ég tók það skýrt fram hér um daginn, að um það eru engin lagaákvæði. Það er aðeins fjárlagaákvæði á hverjum tíma, og það er alveg sýnilegt, að ef á að fara að setja fleiri og fleiri fjórðungssjúkrahús upp í landinu, bara með það fyrir augum að tryggja þeim betri aðstöðu í rekstri, þá verða aðrir aðilar í landinu, sem koma og heimta sömu réttindi fyrir sín sjúkrahús, þótt ekki séu þau gerð að fjórðungssjúkrahúsum, svo að allar þær samþykktir, sem hafa verið gerðar í sambandi við þetta mál, byggjast á gersamlega röngum forsendum, hafi hv. flm. og hv. 2. þm. Árn. lagt málið fyrir á fundinum án þessarar skýringar.
Ég vil hins vegar leyfa mér að benda hv. d. á, að hv. 2. þm. Árn. gaf hér mjög merkilegar upplýsingar í sambandi við sjúkrahússbygginguna fyrr á tímum, þar sem hann sagði, að þegar húsið hefði verið tilbúið að öðru leyti en því, að þá vantaði öll áhöldin í húsið, gafst byggingarnefndin upp og héruðin samtímis. Ég vil biðja menn um að athuga þessi ummæli, þegar þeir eiga að greiða atkvæði um mína till., sem er einmitt um það, að ríkissjóður taki þátt í greiðslu fyrir þessi áhöld, svo að viðkomandi aðilar þurfi ekki af þeim ástæðum að gefast upp eins og Árnesingar á sínum tíma. Og það var aðallega vegna þess, að ég stóð hér upp og talaði í þetta skipti. — Skal ég svo ekki ræða málið, því að ég hef gert grein fyrir minni afstöðu, og ég sé ekki ástæðu til þess að ræða það nánar.